Langaði að þakka ykkur KÆRLEGA fyrir laugardagskvöldið! Þetta var bara frábært í alla staði!!! Þið eruð öll æði!
Var að henda inn myndum, ég ritskoðaði þær EKKERT, mjög skrautlegar margar! hehe.. læt þær í link hérna til vinstri..
P.s. þær eru ekki allveg í röð.. forritið var eitthvað að stríða mér...
Kv. Guðrún Helga
Ætla að láta nokkrar vel valdar flakka..
Enn og aftur.. Snilldin ein!!!
» 38 hafa sagt sína skoðun
» 21 hafa sagt sína skoðun
Hæbbzz..
styttist óðum í að við hittumst á ný...vúhú=)
Ég er nú ekki par hrifin hversu margir ætla að beila á okkur....en svona er lífið...við hin allavega munum skemmta okkur rosa vel
ooooog afþví við erum nú á fullu í að redda mat og öllu saman fyrir daginn þá þurfum við auðvitað að hafa nokkuð nákvæma tölu á fjöldanum sem ætlar að mæta....og verðið verður að vera sem best, ekki viljum við sitja uppi með alltof mikið magn af mat ef helmingurinn af liðinu mætir svo ekki....svo að hér með getur fólk skráð sig á ný eða hætt við fram á miðvikudag, frá og með miðvikudegi þurfa allir þeir að borga sem ekki hafa afboðað sig....þýðir ekkert annað en að vera bara ákveðinn....hehe...
sé ykkur vonandi sem flest á laugard....reynum að láta verðið inn á miðvikud eða fimmtudag...verðum náttúrulega að vita algjöran fjölda fyrst...
Kærlig hilsen=)
» 15 hafa sagt sína skoðun
Jæja fullorðna fólkið mitt J við stöllur höfum hist enn einu sinni og gerðum það stórverk að hringja í alla og tjakka á mættingu svo við gæetum nú farið að plana og séð hvað hver og einn þarf að borga J þar sem að við deilum ofcourse öllum kostnaði á hvern og einn. Reynum auðvita að hafa þetta sem ódýrast svona er allavegana staðan á mættinguni…
JÁ NEI
Þóranna Jan
Heiðdís Hrönn
Guðrún Helga Þórkatla
Fanney
Eyrún
Siggi Stein
Arnór
Rannveig
Jón Þór
Björk
Erla Bryndís
Logi
Sandra Rebekka
Katla
Hemmi
Hjörtur
Hilmar
Svo náðum við því miður ekki í Agnesi og Völu
Ooooog Gummi og Gunni ætla að láta vita sem fyrst hvort þeir komist =) vonum það nú.
Svo getur auðvita eikkað komið uppá or some! Allir sem eru í jáinu eru allana þeir sem halda að þeir komist eða komast J ég sem dæmi veit ekki enn hvort ég er að vinna eða ekki!! Hehe og ég sem startaði þessu! Var bara að byrja í nýri vinnu og svona. En það reddast allt saman… leggg allana allt mitt af mörkum til að mæta og vona að allir aðrir geri það líka…
En jæja þá er það komið á hreint! Svo ætlum við bara að fara gá hvað þetta allt kostar og svona og þetta ætti að vera svona á bilinu 2-3000 kr á mann! Það er nú ekki mikið fyrir góðan dag/kvöld/nótt ehanokkuð?
Læt ykkur svo vita hvernig allt fer og allir að vera síðan duglegir að segja sína skoðun og svona J svo vil ég benda á að það er færsla hér fyrir neðan sem segjir hvað við höfum svona eiginlega planað.. eða hvert planið er
Heyrðu já gummi ef litli jökull er með síðu á netinu viltu segja okkur linkin á henni? svo ég geti nú sett það undir börnin okkar. Og svo audda allir sem eru með síður og eru ekki með link hjá okkur, tell me.
Og svo vil ég segja fyriregfið miskilinginn af síðust færslu.. hehe hemmi á ekki barn og ég vissi það alveg… það var hann gummi sem ég ætlaði að skrifa.. var bara einhverstaðar annars staðar… hehe sry hemmi!! er ekki vön að koma af stað kjaftasögum…
Hafið það svo bara gott, og þanngað til næst… þóranna.
p.s lýst ykkur ekki vel á litin á stöfunum mínum… ekkert hommalega bleikt er það nokkuð… hahahaha
ogogogogogogogogogogogogog.... hérna hvernig er það hefur fólk eikkað ferðast í sumar...
heyrðu ég vil benda á færsluna hérna fyrir neðan...
en langaði líka að biðja ykkur nú um að vera duglegri að láta bekkinn okkar vita og kennara ef við rekumst á þau
heyrðu svo viti þið nú af linknunum hérna hjá okkur krökkunum sem eru með síðu og sætu krílunum okkar
viti þið hvort að lilla beibíð hans hemma sé með síðu...? let me know...
vera síðan dugleg að commenta og láta vita elskurnar
» 50 hafa sagt sína skoðun
jæja kindurnar mínar... nú er þetta allt komið á hreint
****við ætlum að hittast þann 19.ágúst og er plannið að byrja á því að hittast uppí oddeyrarskóla um 1 leitið... skoðum skólan.. og fáum okkur bakelsi með kennurunum
****svo wolkum við yfir í víking vífilfell um 4 leitið og byrjum á að smakka okkur öl.. nammi namm
****svo verður leiðinni haldið heim til foreldra Guðrúnar og ætlum við að halda RÚST PARTÝ.. YEAH... nei grín við fáum þó að halda foreldrislaust partý.. hehe grillum okkurdýrindis steikur og pylsur og höfum það nice yfir 10.bekkja myndbandinu og skoðum gamlar myndir og svoleiðis... svo auðvita bara drekka og hafa gaman
lýst ykkur ekki bara vel á þetta ???
heyrðu og til þess að fara geta planað þetta og vitað hversu marga peninga hver og einn þarf að borga (vonum bara að við þurfum bara 3 peninga!!!!) þurfum við því að vita hverjir komast og komast ekki... og bið ég því ALLA... sem koma inná þessa síðu að láta okkur vita... vonum aðvita að allir komist... "eitt comment" þarf ekki meira... og svo fáum við listan hjá mömmsluni hennar guðrúnar til að hafa samband við þá sem vita ekki af þessari síðu og gá hvort þau komist... vitum þó að jan, hrönn og þórkatla komast ekki
látum ykkur síðan vita af frekari upplýsingum um leið og þið eruð búnað láta okkur vita
takk so mikke...þóranna, heiðdís og guðrún
» 25 hafa sagt sína skoðun
geggjað hvað allir eru að commenta maður og spjalla saman...
það er þá helginn 18-20 NELGD... en ég evast um að við munum nú djamma alla helgina...eða hvað hehe eigum við að segja það föstudaginn 18.ágúst eða? er ekki viss nebla hvort víkingur sé með kynningar á laugardögum.. annars veit ég ekki...gæti svosem líka verið betra að hafidda á laugardegi fyrr þá sem eru að komast að sunna og svolis..!!! verðum bara að fara hittast... guðrun og heiðdís... =) ég er nú með nr hjá guðrúnu núna.. heyri í þér elskan... og við í heiðdísi. heyrðu jú fanney vertu með
heyrðu mér líst vel á að hafa bara okkur oddeyringana en annars á ég líka ofsalega skemmtilegan maka þannig mér væri sko alveg sama að fá hann með... hehe annars yrði það leiðilegt gagnvart þeim sem eiga ekki maka að koma ein, þannig við ættum kanski bara að vera bekkurinn líka hafa makarnir svosem ekkert gaman af því að vera þarna og þekkja engan og svona... er það ekki bara við bekkurinn?? það verður líka rosa gaman... sandra verður bara að senda eiginmanninn í pössun hehe
ég ætla allavegana að fara bara að redda pössunn fyrir mína prinsessu einsog katla... best að vera bara búnað negla það líka svo það verði ekki problem og maður komist pott þétt ef maðurinn skildi vera á sjó...!!
heimahúsið hjá foreldrum þínum væri æði guðrún þú skoðar það stutt í allt einsog þú sagðir...!!
ég þarf að snúast á morgun þá fer í leiðinni uppí oddeyrarskóla og reyni að fá svona lista fyrir okur sem vorum í bekknum það vita ekki allir af þessu alveg nú ekki langt síðan ég bjó til síðuna... er bara hissa á að það skuli vera búið að áhveða helgi og allt sko... hehe en geggjað.
heyrðu já og í sambandi við kennarana.. hehe það væri nú snild að hitta allana guðný, aðalgeir, elsu og hauk sko... hehe og audda fjólu þá kanski bara þegar við skoðum skólan!! efast nú um að þau kæmu eikkað með okkur á djammið hehe... og þó!! heyrðu jú og úlfar og maju audda... þau eru nú alltaf til í tuskið held ég snillingar bara...
kveð í bili... þóranna.
» 12 hafa sagt sína skoðun
VÁ... æðislegt hvað allir eru jákvæðir á þetta... bara snild.
þá er það eimitt bara að áhveða helgi svo allir geti tekið hana frá og gert sig til í gírin fyrir þá helgi það gæti auðvita verið soldið erfitt að finna helgi þar sem allir komast en ég vona svo sannarlega að ALLIR KOMI... það væri geggjað.
ætla þá guðrún og heiðdís að aðstoða mig í þessu eða?
ég setti skoðunar konunn hérna við hliðiná um hvaða helgi mundi henta best?... ofcourse... en hún björk kom með comment... eru margir að fara til útlanda í ágúst? ert þú að fara björk?
þigg auðvita alla þá hjálp sem ég get fengið... mér líst rosalega vel á eimitt að skoða oddeyrarskóla og fara svo á bjórkynningu... heiðdís "góð hugmynd" svo bara heim að sofa... UUUH NEEEEI... hehe ég var nú að hugsa hvað það væri nú fyndið ef við fengjum nú sal oddeyrarskóla til að djamma og drekka okkur blind full... en ég efast nú um það þó hehe... er einhver til í að halda partý eða eigum við að finna okkur sal?? ég mundi sjálf alveg vilja halda partý en þar sem að ég á einn lítinn engill sem verður líklegast heima þá, þá get ég nú ekki haldið partý.
heyrðu já hvað með það bara svo margir komin með babys... ekkert smá krúttlegt... var eimitt í skírninni hjá henni erlu okkar í dag... fullt af litlum stelpum búnað bætast í hópinn... og heyrðu já hann gummi er komin með lítinn engil líka.. ég hitti hann eimitt nokkrum sinnum uppá sjúkrahúsi í dec og jan minnir mig... held að konan hans hafi átt að eiga á svipuðum tima og ég gaman af því... ætli það séu fleiri pabbar komnir í hópinn? allana nóg af mömmum... "já eyrún... allir að **** á fullu" haha on fire... !!! á ekkert að fara bætast fleiri í hópinn eða? allavegana ein gift...!! jább hún sandra rebekka okkar er gift ladys and gentelman... 3.júni síðastliðinn og óskum við henni auðvita bara óendanlega mikið til hamingju
heyrðu og fanney u gleymdir loganum... í bekkja listan hehe en ég held að við ættum líka að geta fengið lista niðrí oddeyrarskóla með gömlu heimasímunum líka svona til að ná að fá uppi á öllum... annars held ég að ég geti pott þétt fundið uppá gumma og hemma. og það væri geggjað ef u getur haft uppi á loga og þótkötlu, katla mín... mjög gott heyrðu já og svo hefur maður nú oft séð hann arnór... hefur ekkert breyst kallinn hehe maður verður bara að stoppa hann útá götu næst þegar maður hittir á hann og fá nr ætli han sé ekki líka mikið uppá bókasafni enþá??? spurning um það...
en já guðrún við verðum í bandi og förum að hafa uppi á öllum og svona... vonandi heiðdís líka.. og endilega bara sem flestir
heyrðu snild með spóluna guðrún.. væri áreila bara ógeðslega fyndið að horfa á þetta í smá glasi hehehe... þótt að maður hafi nú samt ekki verið með í þeirri ferð en þá samt áreila mjöööög fyndið
segjum það gott í bili og endilega commenta... var ekkert smá ánægð þegar ég leit á síðuna áðan og bara 32 comment og allir svo ánægðir og jákvæðir.. ÆÐISLEGT...
bara magnað...kv þóranna.
» 26 hafa sagt sína skoðun
jæja krakkar mínir.. eða fullorðna fólkið mitt ætti ég kanski að segja... ég á hvað að vera gay og herma eftir öllum öðrum og búa til síðu fyrir oddeyrarskóla árgang '85
núna eru komin 5 ár siðan þið/við útskrifuðust... OG ég gaf mér þó það bessaleifi að búa til síðu handa okkur ... ég útskrifaðist nú ekki með ykkur í 10 bekk en hætti nú bara í 9 bekk og ég leifi ykkur bara ekki að hittast án mín hihi og þar sem ég veit að það er enginn síða fyrir okkur eða búið að plana reunion eða eikkað þá mundi ég nú vilja reyna allana að starta einhverju hérna... veit ekki einu sinni hverjir voru valdnir eða hvort það voru einhverjir valdnir til að koma hópnum aftur saman eftir 5 ár... 10 ár og svo framvegis... en hvorki sandra né björk vissu eikkað um það þannig ég ætla bara að gera það vonandi fæ ég nú góðar undirtektir og einhverja hjálp
finnst ykkur ekki annars að við ættum að fara hittast?
heyrðu ég setti þá linka sem ég vissi um og hef fundið hér við hlið af bekknum og börnum okkur.. sem eru buy the way ALLT stelpur hahaha þannig þið verðið að benda mér á fleiri ef það eru fleiri með síður og svolis!! þannig það verða líklegast bara stelpur sem vita af þessari síður svona til að byrja með allana...!! vona nú að þetta gangi hjá mér... langar nefnilega ofsalega mikið að við hittumst efast ekki um að það séu fleiri...
heyrðu svo er ég náttla farinn að kalka... orðinn mamma og 20 ára!! og man því ekki alveg alla né hvort það voru einhverjir fleiri sem hættu í 10 bekk eða byrjuðu nýjir þannig fill me up "fékk hálfgert alsæmers þegar ég var ólétt!"
svo væri alveg æðislegt... ef einhver mundi vilja hjálpa mér við þetta allt saman.. reyna að koma okkur saman aftur í hitting þannig sendið mér email toranna@hotmail.com svo þið getið þá líka fengið notendarnafnið og pw á síðuni og þá getið þið líka bloggað og getið þið sett inn linka og svona fleira stuff...
jæja og svo commenta... annars virkar þetta ekkert hehe
kv þóranna...
» 34 hafa sagt sína skoðun